|
|
Lombardoi (Kennyi Mbuna) Pseudotropheus lombardoi
Stærð: 12 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er dökk gulur með svörtum þverböndum en kerlan ljósblá með dökkbláum þverböndum og ögn minni en hængurinn.
Um fiskinn: Þessi siklíða eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Býsna ákveðnir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Finnast við Mbenjieyju í Malavívatni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.
Búrstærð: 250 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 10-15
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|