toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Pseudotropheus saulosi

Saulosi
Pseudotropheus saulosi

Stærð: 9 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er blár með dökkum þverböndum. Hrygnan er minni og gul. (neðri mynd).

Um fiskinn: Þessi fallega siklíða eignar sér yfirráða- svæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr.  Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Mjög frekir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Best að hafa 3-4 hrygnur á hvern hæng.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar (neðri mynd) af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.

Búrstærð: 250 l

Hitastig:  23-27°C

Sýrustig (pH): 7,4-8,4

Harka (gH): 7-30

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Saulosi male
Saulosi female
botn