|
Pindani (Eduard’s Mbuna) Pseudotropheus socolofi
Stærð: 12 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er blárri en hrygnan og ögn stærri. Bæði eru þau blá og því erfitt að kyngreina. Hængurinn er oftar með eggjabletti og þá spíssaðri em hrygnan. Vottar fyrir þverböndum hjá báðum kynjum. Nokkur litarafbrigði til td. Yellow Fin Aci.
Um fiskinn: Þessi siklíða eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Býsna ákveðnir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Eru samt rólegri en margar aðrar mbúnu- tegundir. Finnast meðfram Mósambíkströnd Malaví- vatns.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.
Búrstærð: 250 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 10-15
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|