|
 |
|
Kingsizei Mbuna Pseudotropheus sp. “Kingsizei”
Stærð: 9 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er ljósblár með dökkum þverböndum. Kviðurinn getur orðið svartur í hrygn- ingarham. Hrygnan er silfurleitari og minni.
Um fiskinn: Þessi siklíða eignar sér yfirráðasvæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Mjög ákveðnir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Best að hafa 3-4 hrygnur á hvern hæng. Finnast umhverfis Likomaeyju í Malavívatni. Hængurinn grefur mikið og virðist aldrei ánægður með útkomuna. Fallegar smá-mbúnur.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 23-27°C
Sýrustig (pH): 7,4-8,4
Harka (gH): 7-30
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|