toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Pundamilia nyererei

pundamilia_nyererei_male_1

Makobey Island
Pundamilia nyererei

Stærð: 8 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litskrúðugri, en hrygnan er að mestu silfurgræn (neðri mynd).

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Best að hafa margar hrygnur á hvern karlfisk. Getur drepið aðra hænga á tímgunartímanum. Finnst í Mwanzaflóa í Viktoríuvatni. Nokkur afbrigði til ss. “Makobey Island” (vinstri neðst) og” Python Island” (hægri neðst).

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Verða kynþroska um 8 mánaða gamlir. Ungir fiskar eru auðveldari í hrygningu. Stórar hrygnur geta gengið með allt að 50 seiði upp í sér.

Búrstærð: 150 l

Hitastig:  22-28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

pundamilia_nyererei_female_1

Both pictures: Copyright www.jjphoto.dk

Makobe Island
Python Island
botn