toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Red-bellied Macaw

Red-bellied Macaw
Ara manilata

Lýsing: Almenn litur grænn; olívíublær á kvið, hnakka, baki og efri stélblöðkum; enni og neðrihluti kinna grænblár; haka, háls og efri hluti bringu grár og hver fjöður með grænni brún; neðri hluti kviðar rauðbrúnn; flugfjaðrir og ytri stærri vængblöðkur bláar með grænni brún; undirvængsblöðkur gulgrænar; undirstélsblöðkur blágrænar; efrihluti stéls grænn; undirhlið stéls olívíugul; goggur svartur; bersvæði kinna gulhvítt; augu dökkbrún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar með ljósan goggenda og minna rauðbrúnt á kviði.

Lengd: 48 cm.

Lífslíkur: 50 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. DNA-greiningar þörf.

Uppruni: Meðfram Andesfjöllum og fjallgörðum í suðausturhluta Venesúelu, vesturhluta Kólombíu, austurhluta Perú og norðurhluta Bólivíu; Trínídad, Gvæjana, Franska Gvæjana, Súrínam og héruðin Goiás, Piauí, Bahia og Mato Grosso í Brasilíu.

Um fuglinn: Fallegur dvergari. Nýir fuglar viðkvæmir eftir flutning; feimnir í fyrstu en fljótir að hænast að eigandanum. Geta oft dáið án sýnilegra ástæðna. Baða sig sjaldan. Naga mikið og þurfa mikið af grænum greinum.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengir víðast hvar.

manilata

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn