|
 |
|
Red-lored Amazon Amazona autumnalis autumnalis
Lýsing: Aðalliturinn er grænn; enni rautt; hvirfill og hnakki grænn og hver fjöður með lillabláum brúnum; efri hluti kinna og eyrfjaðra gulur, stundum rauðar fjaðrir í bland eða svæðið alveg appelsínugult; aukaflugfjaðrir grænar og verða dökkbláar á endunum; fyrstu fimm aukaflugfjaðrir með rauðum ferningi; stél grænt með grængulum endum; ytri hluti ytri stélfjaðra blár; augnhringur hvítleitur; goggur fölgrár; augu appelsínugul; fætur gráir. Einnig til afar sjaldgæft litarafbrigði sem nefnist Yellow Red-lored Amazon.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Kynjamunur sáralítill. DNA-geiningar þörf.
Uppruni: Karíbaströnd Tamaulipas héraðs í Mexíkó suður til N-Nikaragúa; Bay eyja, Hondúras; skarast við A. a. salvini í NA-Nikaragúa.
Um fuglinn: Ákveðinn en ljúfur fugl. Mikill nagari og þarf alltaf að hafa eitthvað að naga. Þykir gaman að baða sig. Verður harðger með aldrinum.
Hávaðasemi: Frekar hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Nokkuð algengur.
Verð: Ótaminn 100.000 kr. Handmataður 170.000 kr.
|
|