|
Red-masked Conure (Red-headed Conure) Aratinga erythrogenys
Lýsing: Grænn; gulgrænn á neðrihluta bringu og kviðar; enni, hvirfill, nefsvæði, augnsvæði, kinnar, vængbeygja, vængbrúnir, ytrihluti undir vængblaðka og mjaðmir rauðar, undirhlið væng- og stélfjaðra olivíugræn; augnhringur hvítleitur; goggur ljós, augu rauðappelsínugul; fætur gráir-húðlitaðir.
Óþroskaðir fuglar án rauða litarins; augu dökk.
Lengd: 33 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Vestur-Ekvador, norðvesturhluti Perú.
Um fuglinn: Geðþekkt gæludýr, leikglatt og félagslynt. Þeir eru yfirleitt ekki góðir talfuglar. Nagar ekki mikið. Frekar hlédrægur. Harðgerður eftir aðlögun- artíma. Hefur gaman af að baða sig. Auðveldur viðureignar.
Hávaðasemi: Í meðallagi, en getur verið hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
Verð: Ótaminn 40.000 kr. Handmataður 80.000 kr.
|
|