|
Red-tailed Amazon Amazona brasiliensis
Lýsing: Almennt grænn; enni og nefsvæði daufrautt; hvirfill og hnakki rósrauður með lillabláum brúnum; haka og kinnar bleikbláar; eyrnafjaðrir dauf bláfjólubláar; vængbrún rauð; aukaflugfjaðrir grænar og dökkbláar til enda; stél grænt með grængulum endum; ytri hluti ytristélfjaðra blár; breitt rautt band þvert yfir stél; augnhringur mjór og grár; goggur ljós með gráum endum; augu rauðappelsínugul; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar með minna rautt á enni og daufari fjaðrir; augu dökk.
Lengd: 37 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Útlitsmunur lítill sem enginn. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Suðausturhluti Brasilíu frá suðausturhluta Sao Paulo til Rio Grande do Sul; núna aðeins á fáum strandsvæðum í Sao Paulo og Parana héraði.
Um fuglinn: Harðger og hress fugl. Getur verið viðkvæmur fyrir sýkingum fyrst í stað. Nagar mikið og nýtur þess að fara í bað. Þarf mikið af ferskum greinum. Getur verið árásargjarn í garð annarra fugla.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu. Stofninn telur um 3.000 fuglar.
|
|