|
Rock Parrot Neophema petrophila
Lýsing: Almennur litur olivíubrúnn; ennisband dökk- blátt með fölblárri brún; nefsvæði, augnsvæði og efri hluti kinna daufblár; kinnar að öðru leyti daufolivía og einnig bringa; kviður olivíugulur, stundum með appelsínugulum blæ; undirstélsblöðkur og undirhlið stélfjaðra gul; vængbeygja, ytri hluti minnivæng- blaðka og aukaflugfjaðrir ljósbláleitar; undir- vængblöðkur og ytri hluti aðalflugfjaðra blár; aðalvængblöðkur mjög dökkbláar; efri hluti stéls olivíublár, ytri fjaðrir gulleitar; dauft hvítt band undir væng; goggur svartleitur; augu dökkbrún; fætur gráir. Óþroskaðir fuglar dufari í fiðri og án bláa ennisbandsins; hvíta vængbandið meira áberandi; neðri goggur gulleitari í mjög ungum fuglum; erfitt að kyngreina óþroskaða fugla og fullvaxta fugla eftir útliti; fá fullorðinsfjaðrir 3-4 mánaða gamlir.
Lengd: 22 cm.
Lífslíkur: 20-25 ár.
Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en litir almennt daufari, einkum blái liturinn; minna ennisband.
Uppruni: Strandsvæði og eyjar meðfram Suður- og Suðvestur-Ástralíu.
Um fuglinn: Hljóðlátir og silalegir fuglar. Bestir í hópum. Fáir sem rækta þá td. í Ástralíu. Fyrsta kynslóð villtra fugla er mjög viðkvæm en seinni kynslóðir mun harðgerðari. Mjög rólegur og yfirlætis- laus fugl.
Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur. Verndaður í Ástralíu.
|
|