toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Rosy Barb

Rosy Barb
Puntius conchonius

Stærð: 14 cm (oftast 5-6 cm).

Kynin: Hrygnan er yfirleitt silfurgrá og karlfiskurinn rauðleitur á neðri helming búksins (neðri mynd). Litirnir magnast á mökunartímanum. Gyllt afbrigði einnig til og einnig slæðuuggi (efsta mynd).

Um fiskinn: Þetta er harðger fiskur og vinsæll vegna blæbrigða í litum. Hann blandast oftast vel öðrum fiskum, en ætti ekki að vera með smáum fiskum. Hann passar vel á dökkum bakgrunni og innan um plöntur. Huga þarf vel að plöntuvali þar eð hann á það til að kroppa í gróður

Æxlun: Fiskarnir dreifa hrognunum í plönturnar, og eggin klekjast á um 24 klst. Best er að aðgreina ungana frá foreldrum sínum.

Uppruni: Asía: Afganístan, Pakístan, Indland, Nepal, og Banglades.

Búrstærð: 80 l

Hitastig:  18-22°C

Sýrustig (pH): 6-8

Harka (dH): 5-19

Fóður: Þurrfóður.

Verð: Rósabarbi 380 kr.
       Slæðurósabarbi 420 kr.
           Gullrósabarbi 450 kr
       Blóð rósabarbi 580 kr

Puntius conchonius
Puntius conchonius1
botn