|
Scaly-naped Amazon Amazona mercenaria mercenaria
Lýsing: Almennt grænn; enni, kinnar, efri- og undirstélsblöðkur ljósgrænar; hvirfill og hnakki með daufsvartri brún; vængbrún gul með rauðum blæ; aðalvængblöðkur og aðalflugfjaðrir verða bláfjólubláar til endanna; rauður ferningur á þrem ystu aukaflug- fjöðrum; stélfjaðrir grænar með grængulum endum; ytri stélfjaðrir með rauðu bandi; augnhringur ljósgrár; goggur dökkgrár og ljósa rót; augu rauð; fætur gráir.
Lengd: 35 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Kynjamunur sáralítill. DNA-geiningar þörf.
Uppruni: Andesföll frá Perú til Norður-Bólivíu.
Um fuglinn: Getur orðið sæmilegur talfugl. Nagar mikið og þarf nóg af greinum. Hlédrægur í fyrstu en verður fljótt harðger. Hefur gaman af að baða sig. Semur ágætlega við aðra amasona utan varptímans.
Hávaðasemi: Miðlungi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z
Staða í dag: CITIES II. Fágætir.
|
|