|
Scarlet-chested Parrot Neophema splendida
Lýsing: Almennur litur grænn; háls og andlit kóbaltblátt með ögn dekkri kinnar og háls; bringa rauð; kviður og undirstélsblöðkur gulappelsínugular; ytri minni og miðvængblöðkur og einnig aukavæng- blöðkur fölbláar; ytri hluti flugfjaðra og undirvængblöðkur fjólubláar; ytri hluti aukaflugfjaðra grænbláar; efri hluti miðstélfjaðranna fjögurra grænn, ytri stélfjaðrirnar gular með dumbgrænni rót; undirhlið stélfjaðra gul; goggur svartleitur; mjór augnhringurinn grár; augu grábrún; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar eins og kvenfugl en með daufgrænni fjaðrir; ungir karlfuglar oftast með djúpblárri andlitslit; undirvængband til staðar en misáberandi; fá fullorðinsfjaðrir ekki fyrr en 24 mánaða gamlir.
Lengd: 20 cm.
Lífslíkur: 20-25 ár.
Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en með fölari fjaðrir og minni bláum lit í andliti; nefsvæði fölblátt; bringa græn; ytri hluti minni og miðvængblaðka og einnig aukavængblaðka mjög fölblár; misfölt vængband undir flugfjöðrum, vantar á sumum kvenfuglum.
Uppruni: Suður-Ástralía frá suðvestasta odda Queensland, vesturhluta New South Wales og norðvesturhluta Victoria til suðausturhluta Vestur- Ástralíu.
Um fuglinn: Hljóðlátur og söngfagur fugl. Nokkuð harðgerður og auðveldur umhirðu. Má hafa með finkum og öðrum smáfuglum. Hefur gaman af að krafsa eftir fæðu á jörðinni. Þarf því reglulega ormahreinsun.
Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldgæfir en fjölmennir á stöku stað.
|
|