|
Scarlet-fronted Conure (Red-fronted Conure) Aratinga wagleri frontata
Lýsing: Eins og A. w. wagleri en rauði höfuðliturinn nær til augnanna; vængbeygja, vængbrúnir og lendar rauðar; stærri.
Óþroskaðir fuglar eru stundum með rautt band yfir bringuna; rauði liturinn á enni og hvirfli nær ekki til augna.
Lengd: 40 cm.
Lífslíkur: 30-40 ár.
Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Vesturhluti Perú og vesturhluti Ekvadors.
Um fuglinn: Leikglaður og félagslyndur fugl. Þeir eru yfirleitt ekki góðir talfuglar en ófeimnir og forvitnir. Naga mikið og þurfa því nóg af greinum. Hafa gaman af að baða sig og harðgerðir eftir aðlögunartíma. Geta eingöngu umgengist aðrar tegundir utan varptíma.
Hávaðasemi: Frekar hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur víðast hvar.
Verð: Ótamdir 48.000 kr. Puttatamdir 60.000 kr.
|
|