|
Serpae Tetra Hyphessobrycon eques
Stærð: 3,1 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litmeiri og hrygnan feitlagnari.
Um fiskinn: Serpae tetran er mjög litfögur og áberandi. Lyndir vel við flesta fiska en getur átt það til að narta í ugga á slæðufiskum. Best að hafa 5 eða fleiri í torfu. Æsist upp á matmálstímum. Harðgerður fiskur og oft sjaldséður. Fæst einnig með slöri.
Uppruni: S-Ameríka: vatnasvæði Amazon-, Guaporé- og Paraguay-fljóts.
Æxlun: Þessi tetra stráir eggjum í gróðurþykkni. Það er tiltölulega auðvelt að fá undan henni. Hrognin klekjast út á 24-36 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga. Fjarlægja þarf foreldrana strax eftir hrygningu.
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 22-26°C
Sýrustig (pH): 5-7,8
Harka (gH): 10-25
Fóður: Þurrfóður, gróður, blóðormar.
Verð: 380 kr.
|
|