|
Severe Macaw Ara severa severa
Lýsing: Aðallitur grænn; fjaðrir á enni, bersvæði kinna, fremst á kinnum og höku rauðbrúnar; hvirfill með bláum blæ; vængbeygja og -brún og minni undirvængblöðkur rauðar; ytri hluti ystu aðalflugfjaðra og aðalvængblaðka blár; efri hlið stéls rauðbrún með grænni rót og bláum endum; undirhlið stéls og flugfjaðra dökk-rauðappelsínugul; bersvæði kinna og umhverfis augu og við nef hvítleitt; goggur svartleitur; augu appelsínugul; fætur grá-dökkgráir.
Óþroskaðir ungar með daufari fjaðrir og dekkri augu.
Lengd: 46 cm.
Lífslíkur: 60 árum.
Um kynin: Lítill útlitsmunur. Kvenfuglar að jafnaði smærri.
Uppruni: Sunnan Orinoco fljótsins í Venesúela yfir til Gvæjana, Súrínam og Frönsku Gvæjana og til Maranhao í norðausturhluta Brasilíu.
Um fuglinn: Stærstur af dvergörunum. Forvitinn og kvikur. Ótamdir fuglar oft hlédrægir og stressaðir. Heimaræktaðir fuglar hænast fljótt að eigandanum. Harðgerðir eftir að þeir aðlagast búrlífi. Hafa unun af að baða sig í rigningu. Naga mikið og þurfa ferskar greinar.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.
|
|