|
Spix’s Macaw Cyanopsitta spixii
Lýsing: Almenn litur daufblár; bringa og kviður með daufgrænum blæ; bak og efri hlið stéls dýpri blá; bersvæði við nef og kinnar dökkgrátt; eyrnafjaðrir og enni fölgráblátt; undirhlið stéls og vængblaðka dökkgrá; goggur svartleitur; augu fölgulleit; fætur gráir.
Lengd: 56 cm.
Lífslíkur: 70-80 árum.
Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri.
Uppruni: Norðausturhluti Brasilíu, áður í suðurhluta Piauí og norðvesturhluta Bahia; hugsanlega einnig í syðsta hluta Maranhaos, norðausturhluta Goi’s og Pernambuco.
Um fuglinn: Líflegur fugl. Villtir fuglar eru hlédrægir í fyrstu og taugaveiklaðir. Hænist fljótt að eigandanum. Getur verið árásargjarn, jafnvel utan fengitíma. Forvitinn og leikgjarn. Leggst á jörðina ef ógnað. Hann nagar mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum. Hann er harðger fugl þegar hann venst búralífi. Má halda í hópum utan varptíma. Hefur unun af að baða sig.
Hávaðasemi: Hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í afar mikilli útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og ágengni manna. Síðasti villti fuglinn sást árið 2000 og stofninn sennilega. Núna reynt að fjölga og bjarga út frá tömdum fuglum, en þeir eru um 60 talsins í heiminum. Afrískar bíflugur hafa líka átt þátt í eyðingu stofnsins.
|
|