toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Swift Parrot

Swift Parrot
Lathamus discolor

Lýsing: Almennur litur grænn; bringa og kviður fölgrænni með nokkrar rauðar fjaðrir á víð og dreif á sumum fuglum; nefsvæði, enni, háls, frmri kinnar, vængbeygja, minni vængblöðkur og undir- vængsblöðkur rauðar; rauður litur nefsvæðis, kinna og hálssvæðis með gula brún; eyrnablöðkur með túrkís blæ; hvirfill dökkblár; undirstélsblöðkur rauðar með misbreiða gula eða grængula enda; ytri hluti miðvængblaðka og aukavængblöðkur grænbláar; aðalvængblöðkur fjólubláar; ytri hluti aðalflugfjaðra fjólubláar með mjórri gulri brún; undirhlið flugfjaðra með misflekkóttu vængbandi; efri hlið miðstélfjaðra brúnrauð með dökkbláum endum; ytri stélfjaðrir dauf dökkbláar með brúnrauðan blæ; undirhlið stéls grá; augnhringur mjór og grár; augu appelsínugul; fætur grá-fölbrúnir; goggur brúnleitur-ljós.

Óþroskaður fuglar eins og kvenfuglinn en fjaðrir miklu daufari; vængband alltaf til staðar; augu brún.

Lengd: 25 cm.

Lífslíkur: 20-25 ár.

Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl nema almennt daufari litir; vængband alltaf til staðar; augu brún.

Uppruni: Tasmanía og stærri eyjar á Bass-sundi; SA- Ástralíu frá suðausturhluta Queensland til austurhluta New South Wales til Victoria og suðausturhluta S-Ástralíu.

Um fuglinn: Líflegur lítill skaftpáfi með fallega og hljómmikla söngrödd; harðger og vinalegur við eiganda. Hefur gaman af klifri og þarf því nóg af greinum (með nýjabrumi ef hægt). Getur verið með öðrum af sömu tegund og öðrum smáfuglum. Hefur unun af að baða sig og láta úða á sig vatni.

Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldséður á meginlandi Ástralíu nema um varptímann.

Verð: Ótaminn 50.000 kr.

Parrot_Swift402

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn