toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Thorichthys aureum

BlueFlash2

Blue Flash Cichlid (Golden Cichlid)
Thorichthys aureum

Stærð: 15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litskrúðugur og rauðleitur að framan og á kvið en kvenfiskurinn brúnleitari.

Um fiskinn: Þessi fiskur er náskyldur eldmunnanum og enn fallegri. Hann eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er mjög auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafshlið Belís (Golden Creek) til Hondúras (vatnasvæðis Motagua fljóts).

Búrstærð: 200 l

Hitastig:  24-28°C

Sýrustig (pH): 7,5

Harka (gH): 2-15

Fóður: Þurrfóður, dafnía, þörungur.

Verð: 1.190 kr.

BlueFlash1
BlueFlash
botn