|
Golden Firemouth Cichlid Thorichthys ellioti
Stærð: 15 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litskrúðugur og rauðleitur á búk með blágrænu perlumynstri. Uggarnir oddhvassari en á hrygnunni.
Um fiskinn: Þessi fiskur er náskyldur eldmunnanum og virkilega fallegur. Hann eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.
Æxlun: Það er mjög auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku (miðmynd).
Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafsströndin á vatna- svæði Papaloapán fljóts.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 25-28°C
Sýrustig (pH): 7-8,5
Harka (gH): 8
Fóður: Þurrfóður, dafnía, þörungur.
Verð: 6-8 cm: 2.690 kr.
|
|