toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Tinfoil Barb

Tinfoil1

Tinfoil Barb
Barbonymes schwanenfeldi

Stærð: 35 cm.

Kynin: Erfitt er að kyngreina þessa fiska, en sumir segja að hængurinn sé bjartari í litum en hrygnan.

Um fiskinn: Þessi er frekar algengur meðal stóru barbanna. Hann er glæsilegur, syndir hratt og er algert augnayndi þegar heil torfa er í búrinu. Það ætti ekki að hafa hann með minni fiskum. Honum líður best í stórum, súrefnisríkum búrum, en annars er frekar auðvelt að ala hann. Athugið að þessir fiskar geta hoppað mjög hátt svo að lok á fiskabúrið er nauðsynlegt

Uppruni: Asía: vatnasvæði Mekong og Chao Phraya á Malayaskaga, Súmötru og Borneó.

Æxlun: Þessir fiskar æxlast aðeins í náttúrunni en hefur tekist með hormónagjöf í heimabúrum.

Búrstærð: 400 l

Hitastig:  27°C

Sýrustig (pH): 6,5

Harka (gH): 3

Fóður: Þurrfóður.

Verð: 890 kr (verð fer eftir stærð).

tinfoil
botn