|
Turquoise Parrot Neophema pulchella
Lýsing: Almennur litur grænn; andlit blátt með fölar kinnar; háls, bringa, kviður og undirstélsblöðkur gular; háls og bringa oft með örlitlum appels- ínugulum blæ; innri minni vængblöðkur dökkrauðar; vængbeygja, ytri minni og miðvængblöðkur turkís- bláar; ytri hluti flugfjaðra og undirvængblöðkur dökkbláar; miðstélfjaðrir ofanverðar grænar, ytri stél- fjaðrir grænar með gulum endum; undirhlið stélfjaðra fölgul; goggur svargrár; mjór augnhringurinn grár; augu dökkbrún; fætur gráleitir-ljósir. Nokkur litarafbrigði til td. Red-fronted, Yellow, Pied og Jade & Olive.
Óþroskaðir fuglar eins og kvenfugl, ungir karlfuglar oft með nokkrar rauðar fjaðrir í vængjum og utanvert andlit; undirvængband til staðar; fá fullorðinsfjaðrir 6 mánaða gamlir.
Lengd: 20 cm.
Lífslíkur: 20-25 ár.
Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en fölari blá í framan; nefsvæði gulhvítt; rauðar vængfjaðrir ekki til staðar; eyrnablöðkur, háls og efri bringa græn; fölt undirvængband.
Uppruni: Suðaustur-Ástralía frá norðurhluta Victoriu til suðausturhluta Queensland.
Um fuglinn: Hljóðlátur og söngfagur fugl. Harðgerður og auðveldur umhirðu. Ófeiminn. Má hafa með finkum og öðrum smáfuglum, en ekki með öðrum af Neophema ætt þar eð karlfuglum verður árásargjarn á varptímanum. Hefur gaman af að krafsa eftir fæðu á jörðinni. Þarf því reglulega ormahreinsun.
Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldgæfir en fjölmennir á stöku stað.
|
|