|
 |
|
Big Mouth Hap Tyrannochromis macrostoma
Stærð: 35 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er blábrúnleitur og vottar fyrir langsöm rák og skellum sem eru meira áberandi í ljósleitari hrygnunni (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi munnstóri ránfiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr. Bestir í pörum en hængur og tvær hrygnur. Þarf mjög stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst víða í vatninu Þetta er fiskæta og fer lét með að sporðrenna litlum mbúnum sem eru með honum í búri.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar og fjöl- kvænisfiskar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Grefur nokkuð. Gengur mikið á við hrygningu.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 23-27°C
Sýrustig (pH): 7,4-8,4
Harka (gH): 7-30
Fóður: Smáfiskar (mbúnur), stórar fóðurflögur, fullvaxin artemía, rækjur.
|
|