toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Umsagnir - Galah Cockatoo

Fanney S. skrifar: Ég heiti Fanney og er 11 ára. Ég á fugl sem er 1 árs og er handmötuð og er af tegundinni Galah Cockatoo og heitir Dís. Ég er búin að eiga hana í 3 mánuði og er strax búin að ná mjög miklum tengslum við hana. Daginn sem ég fékk hana var ég að tala við hana til að róa hana á meðan hún var að venjast nýja staðnum. Kostir hennar eru þeir að hún er mjög skemmtilegur fugl, er ekki lengi að venjast nýju dóti og er alltaf til í að láta klóra sér á hnakkanum. Gallar eru mjög litlir en eru þeir að hún er soldið lengi að venjast nýju fólki og á það til að bíta þá sem hún þekkir ekki og er illa við. Hún er ekki hávær en kallar á eiganda sinn þegar hann labbar í burtu frá henni.
http://www.tjorvar.is/spjall/viewtopic.php?p=195417&highlight=#195417

botn