toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Vieja guttulata   

Vieja guttulatum

Red Spot Cichlid (Red Tailed Cichlid)
Vieja guttulata

Stærð: 30 cm.

Kynin: Karlfiskurinn (miðmynd) er litsterkari en hrygnan (neðsta mynd). Rauður sporður og aftari hluti ugga. Svartar freknur einkum á neðribúk og grænblátt perlumynstur annars staðar. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: Kyrrahafshlið Gvatemala.

Búrstærð: 400 l

Hitastig:  25-30°C

Sýrustig (pH): 7

Harka (gH): 10-20

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 1.490 kr.

Veija guttulata male
Vieja guttulata female
botn