toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Vieja intermedia    

Vieja intermedia1

Northern Checkmark Cichlid
Vieja intermedia

Stærð: 20 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Rauðleitur á kvið og hálsi með svart þverband um sig miðjan og frá því band fram að augun. Grænblátt perlumynstur. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: vatnasvæði Grijalva og Usumacinta fljóts á Kyrrahafshlið Mexikó, Gvatemala og Belís.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  26-30°C

Sýrustig (pH): 7,5

Harka (gH): 10-30

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 5cm: 1.790 kr; 10-12 cm: 8.490 kr.

Vieja intermedia

Copyright www.jjphoto.dk

botn