toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Vieja maculicauda   

Black Belt Cichlid
Vieja maculicauda

Stærð: 25 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Rauður háls og einkennandi svart mittisband og svartar freknur. Rauður litur í sporði. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er frekar auðvelt að fá þá til að fjölga sér þegar búið er að finna par. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Hrognafjöldi yfirleitt um 200-250 en stundum allt að 1.000. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafsmegin - frá vatna- svæði Usumacinta fljóts í Gvatemala til Chagres fljóys í Panama.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  26-28°C

Sýrustig (pH): 7

Harka (gH): 10-20

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 5 cm: 1.490 kr.

vieja_maculicauda
vieja_maculicauda1
vieja maculicauda
botn