toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Vieja regani

Regani

Regan’s Cichlid
Vieja regani

Stærð: 30 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Grænperlumunstraður með svartan blett um miðjan búkinn og á sporðrótinni. Uggarnir eru oddmjórri en á hrygnunni. Uggarnir verða rauðleitari og svörtu blettirnir hverfa á tímgunartímanum (efsta mynd).

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafshlið Mexíkó á Coatzacoalcos vatnasvæðinu.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  24-26°C

Sýrustig (pH): 7,5

Harka (gH): 10

Fóður: Þurrfóður, dafnía, þörungur.

Verð: 5 cm: 1.490 kr; 10-12 cm: 7.690 kr

Veija regani1
Veija regani

Copyright www.jjphoto.dk

botn