toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Vieja synspila

Vieja synspila 1

Red Head Cichlid
Vieja synspila

Stærð: 35 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Rauðleitur á höfði og hálsi með svartar freknar aftar á búk. Grænblátt perlumynstur á víð og dreif. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum. Hængurinn fær hnúð á höfði með aldrinum.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: vatnasvæði Usumacinta fljóts á Kyrrahafshlið Mexikó, Gvatemala og Belís.

Búrstærð: 400 l

Hitastig:  24-30°C

Sýrustig (pH): 7-8

Harka (gH): 9-20

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 5 cm: 1.590 kr; 8 cm: 2.690 kr

Vieja synspila
Vieja synspila 2

Copyright www.jjphoto.dk

botn