|
Zone Cichlid Vieja zonata
Stærð: 30 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Gróf grænperlumunstraður með svartfreknuband eftir búknum og rauða brún á uggum og sporði. Uggarnir eru oddmjórri en á hrygnunni.
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Þægilegur fiskur. Það eina erfiða við hann er að hafa upp á honum!
Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.
Uppruni: Mið-Ameríka: Kyrrahafshlið Mexíkó á Tehuantepec vatnasvæðinu.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 23-30°C
Sýrustig (pH): 7,5
Harka (gH): 12-20
Fóður: Þurrfóður, dafnía, þörungur.
Verð: 10-12 cm: 7.690 kr
|
|