toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

White-fronted Amazon

White-fronted Amazon
Amazona albifrons albifrons

Lýsing: Almennt grænn; enni og fremri hluti hvirfils hvítur, rjómalitaður á sumum; augnsvæði, nefsvæði, alula-vænglingur og aðalvængblöðkur rauðar; hvirfil- fjaðrir daufbláar með svartri brún; aðalflugfjaðrir og ytri hluti aukaflugfjaðra blár; efri- og undirstélblöðkur gulgrænar; efri hluti stéls grænn með gulgrænum endum; ytri stélfjaðrir rauðar í rót; augnhringur grár; goggur gul-ljósleitur; augu fölgul-appelsínugul; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar eru án rauða litarins í vængjum; nokkrar gular fjaðrir á enni; dökk augu.

Lengd: 26 cm.

Lífslíkur: 40-50 ár.

Um kynin: Kvenfuglinn er eins og karlfuglinn nema alula og aðlvængblöðkur eru yfirleitt grænar; hjá sumum kvenfuglum eru nokkrar eða allar aðal- vængblöðkur rauðar, en alula-vænglingurinn er alltaf grænn.

Uppruni: Mið og vesturhluti Mexikó frá Nayarit héraði til Chiapas héraðs; suðvestur Gúatemala.

Um fuglinn: Harðger og hugaður fugl. Getur verið viðkvæmur fyrir innvortissýkingum fyrst í stað. Nagar mikið og þarf því mikið af greinum. Getur verið árásargjarn gagnvart öðrum fuglum.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z

Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.

Verð: Ótaminn 120.000. Handmataður 180.000 kr.

albifrons

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Amazona albifrons nana
Amazona albifrons saltuensis

botn