toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

White Cockatoo

White Cockatoo (Umbrella/Great White Cockatoo)
Cacadua alba

Lýsing: Allur fuglinn er hvítur að lit; breiður kambur; undirhlið stélfjaðra og vængja gul í rót; goggur svartur-ljós; augnhringur með bláum blæ; augu svartleit; gætur dökkgráir.

Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum; ungir kvenfuglar þekkjast um eins árs aldur á grábrúnum augnlitnum; litarbreytingu lokið um 4 ára aldur.

Lengd: 45  cm.

Lífslíkur: 60-70 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir hafa dökk rauðbrún augu; yfirleitt smærra höfuð og gogg.

Uppruni: Halmahera Batjan og Obi, Indóonesíu; áður einnig á Ternate og Tidor.

Um fuglinn: Sólhlífar kakadúinn er sjálfsagt almesti knúsari heimsins en einnig sá heimtufrekasti! Þeir myndu sauma sig fasta við þig ef þeir gætu! Þeir eru ekki miklir talfuglar en bæta það upp með gáfum og hvað þeir eru fljótir að læra. Þeir eru svo vinalegir að stundum reyna þeir að hylja gogginn með kambinum til að sýnast ekki hafa neitt til að nota sem vopn!

Hávaðasemi: Frekar hljóðlátir, en hafa háa rödd.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur en hvergi fjölmennur stofn.

Verð: Ótaminn 240.000 kr. Handmataður 360.000 kr

white

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn