|
Yellow-bibbed Lory Lorius chlorocercus
Lýsing: Rauður; enni, augnsvæði, hvirfill og hnakki svartur; breitt gult bringuband; svartur blettur sitthvoru megin við háls; mjaðmir dökkbláar; vængir grænir; undirvængblöðkur bláar; vængbeygja ljósblá; breitt rósarautt band á undirhlið flugfjaðra; undirhlið stélfjaðra dauf olivíugul, efri hlið stéls rauð með grænum endum; nefsvæði grátt; augnhringur svartur; augu rauð-appelsínugul; fætur dökkgráir; goggur rauð-appelsínugulur.
Ókynþroska fuglar eru án svörtu hálsblettina; gula bringubandið ekki eins áberandi; goggur brúnleitur; augu dökk.
Lengd: 28 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kynin eru eins útlítandi og þarf DNA-próf til að greina kynið.
Uppruni: Austur-Solómonseyjar.
Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.
Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.
Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|