|
Yellow-billed Amazon Amazona collaria
Lýsing: Almennt grænn; höfuðfjaðrir með svartri brún; enni og augnsvæði hvítleitt; framanvert enni daufbláleitt; nasopasvæði og efrihluti kionna blátt með hvítu í; háls, neðrihluti kinna og sumar bringufjaðrir rósrauðar, hver fjöður með blágrænni brún; eyrfjaðrir svarbláar; aðalvængblöðkur og aðalflugfjaðrir bláar; aukaflugfjaðrir daufbláar; undirstélblöðkur gulgrænar; efrihluti stéls grænn með grængulum endum; aðrar stélfjaðrir rauðar í rótinni; augnhringur hvítleitur; goggur gulleitur; augu brún; fætur húðlitaðir.
Lengd: 36 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.
Uppruni: Jamaíka.
Um fuglinn: Harðger og hugaður fugl. Nagar mikið en gaðar sig sjaldan. Rólyndur og hefur sig lítið í frammi.
Hávaðasemi: Getur verið hávaðasamur kvölds og morgna. En rólegur þess á milli.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z
Staða í dag: CITIES II. Lítið vitað um útbreiðslu hans. Fáir fuglar samt eftir í náttúrunni
|
|