toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Yellow Rosella

Yellow Rosella
Platycercus flaveolus

Lýsing: Almennur litur föl gulur; enni rauð- appelsínugult; kinnablettur djúpblár; hnakki, bak og vængfjaðrir svartar með breiðri gulri brún; efri bringa og háls með rauðu ívafi í mörgum fuglum; miðvæng- blöðkur svartar; undirvængblöðkur og ytri hluti væng- fjaðra blár; efri stélblöðkur og neðra bak daufgult; efri hlið miðstélfjaðra blár með grænu ívafi,  ytri stélfjaðrir fölbláar með ljósum endum; undirhlið stéls grá með fölbláum endum; hvítt band á gráar undirhliðar vængja vantar; goggur hvít-grár; augn- hringur mjór og grár; augu dökkbrún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar daufari á litinn; bak olivíugrænt; bringa og kviður föl gulgrænn; fölhvítt vængband til staðar; fá fullorðinsham um 16 mánaða aldur.

Lengd: 33 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni og með appelsínugular fjaðrir á víð og dreif: fölt vængband stundum til staðar; minni og goggur mjórri.

Uppruni: Suðaustur-Ástralía.

Um fuglinn: Athafnasamur fugl og harðger eftir aðlögun. Fjörmikill á varptímanum og getur ekki verið með öðrum þá. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.

Hávaðasemi:  Miðlungs hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

yellowrosella

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn