|
 |
|
Blue-eyed Cockatoo Cacatua ophthalmica
Lýsing: Alveg hvítur; langur, afturlægur, rúnnaður, gulur og hvítur kambur; eyrnafjaðrir, kinnafjaðrir og neðsti hluti háls með gulum blæ; undirhlið vængja og stéls gulleit; kambur breiður og ávalur; augnhringur blár; augu dökkbrún; goggur svartleitur; fætur grásvartir.
Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum en augu dökk.
Lengd: 50 cm.
Lífslíkur: 60 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlarnir en augu rauð.
Uppruni: Nýja-Bretland og Nýja-Írland í Bismarck-eyjaklasanum.
Um fuglinn: Fallegur fugl en hlédrægur í fyrstu. Fljótur að venjast eigandanum. Þarf nóg að naga, enda goggurinn sterkur. Harðgerður eftir aðlögunartíma.
Hávaðasemi: Hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur nema á Nýja-Bret- landi.
|
|