|
Festive Amazon Amazona festiva
Lýsing: Almennt grænn; hnakkafjaðrir með daufsvartri brún; flugfjaðrir með gulgrænni brún; mjótt dökkrautt band yfir enni og nefsvæði; svæði ofan augna og höku blátt; kinnar gulgrænar; neðra bak skarlatrautt; vængbrún gulgræn; aðalvæng- blöðkur og aðalflugfjaðrir bláfjólubláar; stél grænt með grængulum endum; augnhringur grár; goggur grár; augu rauðappelsínugular; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar litminni á höfði; neðra bak eiginlega grænt; sumar ytri stélfjaðrir rauðar í rótinni; augu dökk.
Lengd: 34 cm.
Lífslíkur: 60-70 ára.
Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.
Uppruni: Frá Austur-Ekvador, norðausturhluta Perú og suðausturhluta Kólombíu til Amazon lægðarinnar og allt til neðra Rio Madeira.
Um fuglinn: Harðger og hress fugl. Getur verið viðkvæmur fyrir sýkingum fyrst í stað. Nagar mikið og nýtur þess að fara í bað. Þarf mikið af ferskum greinum. Er rólegur að eðlisfari.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|