toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Glossy Cockatoo

Glossy Cockatoo
Calyptorhynchus lathami

Lýsing: Almennur litur daufbrúnn; höfuð, hnakki, kviður og bringa sótbrúnn; bak og vængir svartir; miðstélfjaðrir svartar, hliðarfjaðrir með breiðu rauðu bandi; augnhringur svartur; augu dökkbrún; fætur gráir; goggur grár.

Óþroskaðir fuglar hafa gular brúnir á bringu- og kviðfjöðrum; gular skellur á vængblöðkum, en eki á höfði; stélband og goggur eins og hjá kvenfuglum; ungir karlfuglar ná fullum fjaðurskrúða á 4. ári.

Lengd: 48 cm.

Lífslíkur: 50 ár.

Um kynin: Kvenfuglar með gular fjaðrir á höfði og gular á undirvængblöðkur; stélband með gulu í og svartar þverrákir; goggur grár-ljós.

Uppruni: Austur-Ástralía frá miðhluta Queensland til austurhluta Victoriu; Kangaroo-eyja.

Um fuglinn: Erfitt að vera með hann utan Ástralíu vegna sérhæfrar fæðu. Étur eingöngu kasúarína hnetur. Neitar að éta aðrar fæðutegundir. Er eingöngu að finna í Taronga dýragarðinum í Sydney. Hneturnar þurfa að vera ferskar þar eð þær þorna fljótt og fræin falla úr þeim. Má hafa með smærri fuglum. Nagar ekki greinar og því má hafa tré og runnar í búrinu.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Frekar sjaldgæfur og víða á undanhaldi.

Black-Cockatoo_Glossy4

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn