toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Goffin's Cockatoo

Goffins

Goffin’s Cockatoo
Cacatua goffini

Lýsing: Allur fuglinn er hvítur á lit; nefsvæði bleikt; eyrnafjaðrir með fölgulum blæ; höfuðfjaðrir fölbleikar í rót en ekki sýnilegt; undirhlið stélfjaðra og vængja ljósgul; undirstélsblöðkur rauðappelsínugular með hvítri brún; kambur breiður og ávalur; goggur gráhvítur; augnhringur hvítur; augu svört; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum en augu dökk; kvenfuglar ná fullorðins augnlit 2-3 ára.

Lengd: 32 cm.

Lífslíkur: 40-50 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir hafa rauðbrún augu.

Uppruni: Tanimbar-eyjar, Indónesíu; hefur hugsan- lega náð fótfestu á Tual í Kai eyjaklasanum.

Um fuglinn: Frekar sjaldgæfir. Hljóðlátir. Fullorðnir fglar oft hlédrægir en hænast fljótt að eigandanum. Hættir til að fá vírussjúkdóma og þess vegna þarf að forðast streitu. Skemmdir í fiðri taka nokkur ár að koma fram (Oto beak & feather syndrome). Hefur mikla nagþörf og þarf því nóg af greinum.

Hávaðasemi: Stundum háværir.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Á undanhaldi vegna veiða og skógarhöggs. Í útrýmingarhættu.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn