|
Lilac-crowned Amazon Amazona finschi finschi
Lýsing: Grænn; gulgrænn á bringu og kvið; enni, fremri hluti hvirfils og nefsvæði rauðbrúnt; afturhluti hvirfils, háls- og hnakkahliðar fölbláar; augnsvæði, kinnar og eyrnafjaðrir gulgrænar; aukaflugfjaðrir bláfjólubláar með rauðum ferningi á fyrstu fimm fjöðrum; stél grænt með grængulum endum; ytrihluti ytri stélfjaðra bláar; augnhringur grár; goggur gul-ljósleitur; augu appelsínugul; fætur gráir.
Lengd: 33 cm.
Lífslíkur: 60-70 ár.
Um kynin: Útlitsmunur lítill sem enginn. DNA-grein- ingar þörf.
Uppruni: Miðvestur Mexíkó og suðvestur Mexíkó frá suðurhluta Sinaloa og Durango suður til Oaxaca.
Um fuglinn: Harðger og hress fugl. Getur verið var um sig á nýjum stöðum. Nagar mikið og nýtur þess að fara í bað. Þarf nóg af greinum.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
|
|