toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Major Mitchell’s Cockatoo

Major Mitchell’s Cockatoo (Leadbeater’s Cockatoo)
Cacatua leadbeateri leadbeateri

Lýsing: Almennt hvítur; hvirfilfjaðrir bleikar í rót; mjór, rauður kambur með gult band eftir miðju og hvíta enda; enni, höfuðhliðar, bringa og kviður laxableikur og hvítnar neðst á kviði; augnhringur hvítur; augu dökbrún; fætur gráir; goggur ljós.

Óþroskaðir fuglar með daufari fjaðrir; augu brún hjá báðum kynjum.

Lengd: 35 cm.

Lífslíkur: 60 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en kviður hvítur og breiðara gult band í kambi; augu rauð.

Uppruni: Þurr- og hálfþurr landssvæði í Mið-Ástralíu, nema á norðausturhorninu.

Um fuglinn: Fallegur og tignarlegur fugl sem þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur. Þarf nóg að naga, enda goggurinn sterkur. Mjög harðgerður eftir aðlögunartíma. Henta yfirleitt ekki með öðrum kakadúum. Oft frekar hlédrægur. Þarf oft að ormahreinsa þar eð hann er mikið á jörðinni.

Hávaðasemi: Nokkuð hávær, einkum á morgnana.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Fer fækkandi. Hefur sums staðar hopað fyrir Galah kakadúum.

leadbeater1

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua leadbeateri mollis

botn