|
Masked Lovebird Agapornis personata
Lýsing: Höfuðið, kinnarnar og efri hálsinn eru svört eða svartleit. Hnakkinn er gulur og nær alveg niður á brjóst. Maginn er ljósgrænn, vængirnir dökk grænir, gumpurinn grænn með fljólubláum blæ, og stélið er grænt. Goggurinn er eldrauður og er hvítur hringur í kringum augun. Fæturnir eru blágráir. Mörg litarafbigði til - sum sjaldgæf.
Lengd: 14 cm.
Lífslíkur: 15-30 ár.
Um kynin: Kynin eru mjög lík en í heildina hefur karlfuglinn flatara höfuð en kvenfuglinn.
Uppruni: Norðaustur-Tansanía.
Um fuglinn: Þetta eru ástúðlegir fuglar og mjög athafnasamir, naga mikið og þola illa aðrar fuglategundir í kringum sig.
Hávaðasemi: Miðlungshávær, getur flautað hátt.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Í útrýmingarhættu.
Verð: Ótamdir 13.900 kr. Handmataður frá 18.000 kr.
|
|