toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Red-tailed Cockatoo

Red-tailed_black1

Red-tailed Cockatoo
Calyptorhynchus magnificus magnificus

Lýsing: Almenn litur svartur; bak, hnakki, kambur og bringa með aðeins brúnum blæ; miðstélfjaðrir svartar, hliðarfjaðrir svartar með breiðu rauðu bandi; augnhringur svartur; augu dökkbrún; fætur grábrúnir; goggur dökkgrár. Karlfugl á mynd.

Óþroskaðir fuglar eins og kvendýrið; ungir karlfuglar ná fullum fjaðurskrúða á fjórða ári.

Lengd: 60 cm.

Lífslíkur: 50-70 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir yfirleitt svarbrúnar; gulbrúnar skellur á höfði, flugfjöðrum og aðalflugfjöðrum; fjaðrir á bringu og kviði með brúngulum brúnum; gult stélband sem verður appelsínugulari við enda og með svörtum þverböndum; goggur ljós.

Uppruni: Austur-Ástralía frá Cape York skaga og Carpentaria-flóa suður til norðausturhluta New South Wales; áður allt til Sydney.

Um fuglinn: Kraftmikill páfagaukur og mjög harðgerður eftir aðlögun. Verða sljóir í búrum og af of litlum vistarverum. Getur átt það til að vera matvandur, einkum ef hann skiptir um eigendur en étur gjarnan furuhnetur í fyrstu. Mikill nagari og þarf gott framboð af ferskum laufguðum greinum og rotnandi viði. Viðkvæmur fyrir raka og kulda.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur sums staðar en á undanhaldi á vissum svæðum.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Calyptorhynchus magnificus macrorhynchus
Calyptorhynchus magnificus naso
Calyptorhynchus magnificus samueli

botn