toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Red-vented Cockatoo

Red-vented Cockatoo (Philippine Cockatoo)
Cacatua haematuropygia

Lýsing: Allur fuglinn er hvítur að lit; eyrnafjaðrir með fölgulum blæ; rót kambfjaðra fölbleikgul, en ekki sýnileg; undirhlið stélfjaðra og vængja fölgul; undirstélsblöðkur rauðappelsínugular með hvítri brún; kambur breiður og ávalur; goggur gráhvítur; augnhringur hvítur; augu dökkbrún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum en undirstéls- blöðkur laxableikar; dökk augu; kvenfuglar ná fullorðins augnlit 2-3 ára.

Lengd: 31 cm.

Lífslíkur: 40-50 ár.

Um kynin: Kvenfuglarnir hafa rauðbrún augu.

Uppruni: Filippseyjar.

Um fuglinn: Frekar sjaldgæfir. Hljóðlátir. Fullorðnir fglar oft hlédrægir en ungir fuglar verða fljótt gæfir. Hættir til að fá vírussjúkdóma og þess vegna þarf að forðast streitu. Getur verið mjög árásargjarn gagnvart öðrum á varptíma.

Hávaðasemi: Frekar hljóðlátir.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Á undanhaldi vegna veiða og skógarhöggs. Í útrýmingarhættu.

Philipcoc

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn