|
Salmon-crested Cockatoo (Moluccan Cockatoo) Cacatua moluccensis
Lýsing: Hvít-laxableikur; breiður kambur með hvítum fremrifjöðrum og sterk laxableikum fjöðrum undir; undirhlið vængja laxableik; stélfjaðrir gulappelsínu- gular og bleikar í rótinni; goggur svartleitur; augnhringur hvítur með fölbláum blæ; augu svörtbrún; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum; bera má kennsl á kvenfuglum við eins árs aldur þegar augað er grábrúnt; dr ná fullorðins augnlit 4 ára.
Lengd: 52 cm.
Lífslíkur: 70-80 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir hafa stundum rauðleit augu; höfuð og goggur yfirleitt minni.
Uppruni: Ceram-eyja, Indónesíu; útdauður á eyjun- um Saparua og Haruku; einu sinni fluttur út í Amboneyju en horfinn aftur.
Um fuglinn: Frekar hávær þegar hann er spenntur. Hefur mjög skemmtilegan persónuleika. Hlédrægur í fyrstu. Fullorðnir fuglar oft hlédrægir en hænast fljótt að eigandanum. Hefur mikla nagþörf og þarf því nóg af greinum. Harðgerður eftir aðlögunartíma.
Hávaðasemi: Frekar háværir.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna veiða og skógarhöggs. Aðeins um 2.000 fuglar eftir í náttúrunni.
|
|