|
Western Galah Cockatoo Eolophus roseicapillus assimilis
Lýsing: Eins og E. r. roseicapillus en fjaðrir almennt fölari; hvirfill ögn bleikari; augnhringur grár.
Lengd: 35 cm.
Lífslíkur: 40-50 ár.
Um kynin: Kvenfuglarnir eins og karlfuglarnir en augu rauð.
Uppruni: Vesturhluti S-Ástralíu.
Um fuglinn: Mjög harðgerður og fallegur fugl. Í hópi hljóðlátra kakadúa. Hann er ekki eins þurftafrekur og margir aðrir kakadúar. Þarf nóg að naga, enda goggurinn kröftugur. Mikilvægt að sjá honum fyrir greinum með laufblöðum á. Þarf að ormahreinsa ef hann er hafður utandyra þar eð hann er svo mikið á jörðu niðri.
Hávaðasemi: Getur heyrst í honum, einkum á morgnana.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|