toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Yellow-shouldered Amazon

Yellow-shouldered Amazon
Amazona barbadensis barbadensis

Lýsing: Almennt grænn; dauf svört brún á fjöðrum; enni og nefsvæði hvítt; fremri hluti hvirfils, enni, augnsvæði, vængbeygja og mjaðmir gular; neðrihluti kinna og haka blá; bringa og kviður með ljósbláum blæ; fremri vængbrún gulgræn; aðalvængblöðkur og ytri hluti aðalflugfjaðra bláfjólublár; rauður ferningur á fjórar ystu aukaflugfjaðrir; stél grænt með grængulum endum; ytri stélfjaðrir appelsínugular í rótinni; augnhringur hvítleitur; goggur ljós; augu rauð- appelsínugul; fætur grábrúnir.

Lengd: 33 cm.

Lífslíkur: 70-80 ár.

Um kynin: Útlitsmunur lítill sem enginn. DNA-grein- ingar þörf.

Uppruni: Strandsvæði Falke og Anzo tegui héraða í Venesúela; Aruba eyja í Minni Antilles-eyjum en gæti þegar verið útdauður þar.

Um fuglinn: Harðger og hress fugl. Getur verið viðkvæmur fyrir sýkingum fyrst í stað. Nagar mikið og nýtur þess að fara í bað. Þarf mikið af ferskum greinum. Er rólegur að eðlisfari og semur við aðra amasona.

Hávaðasemi: Miðlungs hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.z

Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu en finnst enn í hópum sums staðar.

amazona-barbadensis

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Amazona barbadensis rothschildi

botn