toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Equadorian White-eyed Conure

Equadorian White-eyed Conure
Aratinga leucophthalma callogenys

Lýsing: Eins og A. l .leucophthalma en með aðeins dekkri fjaðrir; rauðar fjaðrir neðst á kinnum á flestum fuglum; goggur stærri og þyngri.

Lengd: 32 cm.

Lífslíkur: 25-30 ár.

Um kynin: Ekki hægt að kyngreina nema með DNA greiningu.

Uppruni: Austurhluti Ekvador, Norðaustur-Perú og norðvesturhluti Brasilíu á efra Amasónsvæðinu.

Um fuglinn: Líflegur fugl. Mikill nagari. Þarf nóg af greinum til að naga. Hlédrægur í fyrstu og taugaóstyrkur en venst eigandanum hægt og rólega. Harðgerður eftir aðlögunartíma. Hefur gaman af að baða sig. Gargar þegar ókunnuga ber að garði.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

Aratinga_leucophthalma

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Aratinga leucophthalma leucophthalma
Aratinga leucophthalma propinqua

botn