|
White-eyed Conure Aratinga leucophthalma leucophthalma
Lýsing: Aðallitur grænn en ögn fölari á bringu og kvið; nokkrar rauðar fjaðrir á víð og dreif á höfði; vængbeygja, vængbrún og ystu minni undirvæng- blöðkur rauðar; stærri undirvængblöðkur gular; undirhlið vængja og stéls olivíugul; augnhringur hvítleitur; augu brún; fætur gráir; goggur ljós.
Óþroskaðir fuglar eins og fullorðnir en með ekkert eða lítið rautt á sér; augu dökk.
Lengd: 32 cm.
Lífslíkur: 25-30 ár.
Um kynin: Ekki hægt að kyngreina nema með DNA greiningu.
Uppruni: Franska Gvæjana, Gvæjana, Súrinam, Austur-Kólombía, Austur-Venesúela, mest öll Brasilía, Bólivía, Paragvæ, Norðaustur-Úrúgvæ og norðurhluti Argentínu.
Um fuglinn: Líflegur fugl. Mikill nagari. Þarf nóg af greinum til að naga. Hlédrægur í fyrstu og taugaóstyrkur en venst eigandanum hægt og rólega. Harðgerður eftir aðlögunartíma. Hefur gaman af að baða sig. Gargar þegar ókunnuga ber að garði.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur.
|
|