|
*Fuglavinur* skrifar: Ég er 14 ára stelpa og á dísarpáfagauk sem heitir Ásta. Ásta er handmötuð frá Tjörva og er hún mjög góð og blíð. Ég fékk hana frá stelpu í Reykjavík þegar hún var rúmlega 1 árs og hún var mjög fljót að byrja að treysta mér. Núna er ég búin að eiga hana í 1 ár og það er búið að vera einstaklega skemmtilegt og frábær félagsskapur. Þegar við kynntumst fyrst var hún svolítið stygg og vildi auðvitað ekki leyfa mér að klappa sér og snerta alls staðar, en núna treystir hún mér mjög vel og leyfir mér að gera næstum allt við sig. Henni finnst samt ekki gaman að vera á hvolfi og finnst óþæginlegt að láta lyfta á sér vængjunum. Hún er algjör kelirófa og elskar að láta klóra sér og kjassa, hún getur samt verið voðalega mikil frekjudós. Gallar hennar eru samt að hún getur stundum verið soldið hávær sérstaklega þegar ég er ekki hjá henni eða hún sér mig ekki, þá getur hún fengið alveg öskurkast. Henni finnst mjög gaman í baði og elskar að fara með mér í sturtu. Hún leikur sér samt voðalega lítið að dótinu sínu nema einni grein sem henni finnst gaman að naga. Henni finnst líka gaman að naga allt skóladótið mitt þegar ég er að læra, og elta pennann þegar ég skrifa hehe. Uppáhalds maturinn hennar er popp og allt sem er óhollt, en samt fær hún ekki, henni finnst samt líka voðalega gott grænmeti og ávextir. http://www.tjorvar.is/spjall/viewtopic.php?t=19557&highlight=%2Afuglavinur%2A
Sigga skrifar: Ég heiti Sigga og er fædd 1979. Ég er eigandi dísunnar Bíbí sem ég fékk hjá vinkonu minni haustið 2004, þá var hann rúmlega 1 árs. Bíbí er "normal grey" eða bara grár dísukarl og frekar smávaxinn. Þykir líklegt að hann hafi verið örverpið í hópnum. Hann bætir smægðina með feikna karakter og flauthæfileikum. Upp á síðkastið hefur Bíbí verið kallaður Ívan grimmi hér á heimilinu sökum gífulegrar frekju sem tengist sennilega vorinu og varphugleiðingum!
Bíbí féll strax vel inní litlu fjölskylduna mína, en fyrir á ég kanínu og hringhálsann Óríon. Þeir tveir þykjast ekki sjá hvorn annan og rífast sjaldan, og þeir skiptast alveg á að vinna rifrildin. Bíbí er frekja af Guðs náð og fær það sem hann vill, þegar hann vill það annars fer hann í fílu í heilar 10 mínútur! Já hann er fljótur að fyrirgefa ef honum er mútað með knúsi og klóri. Bíbí er sjúklega áhugasamur um gesti, og fæ ég akkúrat enga athygli ef gest ber að garði. Hann er aftur á móti oft svo aðgangsharður að ég verð að láta hann dúsa í búrinu á meðan ég sinni gestunum.
Bíbí kann að segja "halló", "halloj" og "komdu". Flautar nokkra lagstúfa og er mjög snöggur að læra ný hljóð. Hermir eftir tannburstun, flautar úlfablýstrið og raular. Dansar, kinkar kolli og snýr sér í hringi! Í góðu skapi hljómar hann eins og þröstur með engisprettu fasta í kokinu, eða eins og ástfanginn unglingur með kossahljóð! Mikil er fjölbreytnin a.m.k!
Í vondu skapi hljómar hann eins og heill hópur af kríum eða eins og leiserbyssa (ég kenni hringhálsanum um það!)
Ókostir: 1. Bíbí er yfirgengileg frekjudós sem bítur, klórar og öskrar ef hann fær ekki það sem hann vill. 2. Bíbí kúkar þar sem honum hentar, og finnst þæginlegast að kúka á föt. 3. Bíbí er rykfugl mikill og ég þarf að þrífa endalaust útaf honum einum! 4. Kanínan mín lætur rafmagnssnúrur í friði, en það gerir Bíbí ekki og skemmir a.m.k eina á mánuði! 5. Háður mannfólkinu, verður óstyrkur ef hann er laus í íbúðinni og sér enga manneskju. 6. Matvandur, en það er að batna - vill helst bara kínakál en er farinn að smakka papriku, brokkál og blómkál.
Kostir: 1. Bíbí er alveg ótrúlega kelinn og ég fæ knús á hverjum einasta degi 2. Bíbí kúkar litlum kúk sem auðvelt er að þrífa. 3. Hann er mjög fyndinn og er oft með trúðslæti, dansar eða dröslar dóti útum alla íbúð og gefur frá sér skondin hljóð! 4. Hann er flokkaður sem "hljóðlátur" fugl og er það...oftast! 5. Öfugt við hringhálsann minn, Óríon, þá er Bíbí mannblendinn og vill vera með í öllu sem við gerum. 6. Þessi litla skepna vinnur hug og hjörtu allra sem kynnast honum.....
|
|